Flugfornleifafræði er merkileg grein. Nú á miklum tímamótum í sögu Fokkersins á Íslandi, er gaman að minnast örlítið Anthony Fokkers (1890-1939), flugvélabrautryðjandans hollenska, sem stundum var kallaður Hollendingurinn Fljúgandi. Í leiðinni væri vert að minnast einnar konu hans.
Það hafa kannski ekki margir velt því fyrir sér, er þeir flugu um loftin blá með Fokkerum Flugfélags Íslands eða Landhelgisgæslunnar, að ein eiginkvenna Fokkers flugvélasmiðs var af alíslenskum ættum. Hún hét Violet Austmann, betur þekkt sem Violet Eastman og var dóttir sæmdarhjónanna Snjólfs Jóhannssonar Austmanns frá Krossi á Berufjarðarströnd í S-Múlasýslu (f. 1860) og konu hans Sigríðar Jónsdóttur sem ættuð var úr Skagafirði. Þau hjónin höfðu sest að í Winnipeg í Kanada og dóttir þeirra Violet fæddist þar aldamótaárið 1900.
Þegar Fokker kvæntist Violet Eastman árið 1927 var hann nokkrum árum áður skilinn við fyrri konu sína, Sophie Marie Elizabeth von Morgen, sem var dóttir þýsks hershöfðingja úr fyrri heimsstyrjöldinni. Anthony Fokker hafði árið 1910 eignast son, Tobias, með fyrstu ástinni sinni, hinni vellauðugu rússnesku flugkonu Ljubu Galanschikoff.
Fokker flugvélaverksmiðjurnar þénuðu vel í fyrri styrjöldinni á því að selja flugvélar til Þjóðverja. Fokker var því efnaður vel þegar hann kvæntist hinni fögru Violet Austmann. En sælan entist ekki og ekki kom Fokker Friendship nafnið til út af því hjónabandi.
Violet Austmann (Eastman) Fokker og maður hennar (fyrir miðju) í Fokker F-10A flugvél árið 1928. Myndin efst er af herra Fokker og konu hans Violet, sem var af alíslenskum ættum.
Einn morgun árið 1929 flaug hin íslenskættaða Violet. Ekki í flugvél, heldur beint út um gluggann á íbúð þeirra hjóna á 15. hæð á 285 Riverside drive á Manhattan í New York. Upphaflega var ályktað að hún hefði framið sjálfsmorð. Síðar fengu lögfræðingar Fokkers því breytt í dauða vegna lofthræðslu (vertigo). Þegar nægir peningar voru annars vegar, komu víst aðrir möguleikar ekki til greina. Violet var lögð til hinstu hvílu í New York. Í sömu borg dó Anthony Fokker tíu árum síðar úr heilabólgu eftir uppskurð á ennisholum. Hann var lagður til hvílu í Hollandi. Violet sem dó á gangstétt á 110 stræti gleymdist, en Anthony Fokker er minnst sem hetju háloftanna.
Hvað fær unga konu til að fljúga út um gluggann heima hjá sér, þegar hún gat flogið hvert á land sem var með flugvélum manns síns? Dauði Violets Austmann Fokkers er einatt afgreiddur á mjög furðulegan hátt af karlmönnum með flugdellu. Líkt og að hún hafi bara verið gallaður varahlutur við söguna um hinn merkilega flugkappa Anthony Fokker:
Apparently an unstable character to begin with, her complete disillusionment about the marriage led her to leap to her death from their Manhattan appartment on February 8, 1929. Fokker, in the Dutch version of his autobiography, admitted somewhat sadly to his inability to communicate and love. (Sjá hér).
Í Morgunblaðinu stóð þetta hér um árið: Anthony Fokker Elizabeth skildu þar sem Fokker þótti bæði kvensamur og villtur í líferni. Samband þeirra Fjólu eða Violet varð ekki langlíft þar sem hún framdi sjálfsmorð árið 1929 með því að stökkva út um glugga á íbúð þeirra hjóna í New York. (Sjá hér).
Ef við skoðum samtímaheimildir, t.d. frétt á forsíðu Brooklyn Daily Eagle má lesa þetta 9. febrúar 1929, daginn eftir dauða Violets:
Wife´s Plunge to Death; Accident, Says Fokker
Mrs. Anthony H.G. Fokker
Declaring his wife´s death an accident, Anthony H.G. Fokker, designer and manufacturer of Fokker airplanes, today began funeral arrangements for Mrs. Fokker, killed last night when she fell from a window of their apartment on the 15th floor at 285 Riverside dr. to the sidewalk in 101st st.
Mrs. Fokker had returned from Presbyterian Hospital a few hours before her fall. She had been suffering from a nervous disorder for some time.
Fokker returned from an air flight yesterday feeling drowsy and went to sleep after a light supper. While he was asleep Mrs. Fokker, who was lying down, asked a maid to get her a glass of water. When the maid returned Mrs. Fokker has dissappeared. She had evidently fallen over the low sill of the window.
Amos Erickson of 1760 Jerome ave. found the body and called a policeman. Mrs. Fokker was dead when an ambulance arrived. Herbert Reed, secretary and treasurer of the Fokker Aircraft Company, gave a statement in which he said Mrs. Fokker had evidently fainted.
Þannig var það bara afgreitt.
Það þótti nú ekkert slor að búa á 285 Riverside dr. í den, eða jafnvel nú. Miðað við að Violet féll út um glugga á 15. hæð niður á gangstétt á 101 stræti, þá hafa þau búið í horníbúð. Ein svipuð íbúð á 11. hæð var seld á tæpar 1.4 milljónir bandaríkjadala fyrir nokkrum árum síðan.