Quantcast
Channel: Fornleifur
Viewing all articles
Browse latest Browse all 396

Heilagi maðurinn í Jerúsalem (1880)

$
0
0

IMG_8480 bNú þegar hinir örfáu gyðingar Íslands hafa fengið lögmálið á rúllu (Tóru) sem þeir dönsuðu með um götur Reykjavík sl. sunnudag, langar langar mig að birta mynd sem ég á. Hún sýnir rabbína í Jerúsalem. Ég átti víst yngri mynd af þessum manni eldri. Rabbíninn sat einnig fyrir um aldamótin 1900 í Jerúsalem, og þar bjó hann líka (sjá hér). Nafn hans er ekki þekkt, en hann er þekktur af öðrum ljósmyndum og hafði því greinilega ekkert á móti illu auga myndavélarinnar.Rabbi Slideower 3Fornleifssafn náði í rabbínann hjá skransala í Alexandríu í Egyptalandi. Heitir sá ágæti maður Ashraf Abdelfattah.

Þetta virðist vera sami maðurinn á myndunum báðum. Nýja ljósmyndin er einnig Laterna Magica skyggna, en er mjög vandlega handlituð og alldólglega retúseruð. Hún er 20 árum eldri en fyrrgreind ljósmynd.

hugheswcWilliam Charles Hughes hét gleraugnasali og framleiðandi Lagerna Magica sýningatækja,  sem í aukastarfi framleiddi seldi Laterna Magica skyggnur. Á myndinni stendur að hún sé gefin út í seríu sem kallaðist The Holy Land, þegar fyrirtæki W.C. Hughes var til húsa á 151 Hoxton St. London N., en þar var fyrirtækið til húsa frá 1879-1882 (sjá hér). Ljósmyndin af rabbínanum er því að minnsta kosti 140 ára gömul.

IMG_7888 c
Fornleifssafn á aðra ljósmynd sem sýnir þrjá rabbína sem sátu fyrir í Jerúsalem á 10. áratug 19. aldar. Þeir voru greinilega ekki eins ólmir í myndatökur og starfsfélagi þeirra.

Þetta voru fátækir menn og hálfumkomulausir í borg sem var stjórnað af Tyrkjum, þar sem yfirstéttin voru arabískir kaupmenn frá ýmsum löndum (síðar kallaðir Palestínumenn með hirðingjum og bændum landsins og fjölmörgum innflytjendum frá Egyptalandi).


Viewing all articles
Browse latest Browse all 396