Hér er er loks eins konar fornleifafræði. Við sögu kemur gamall lektor minn frá námsárunum í Árósi, sem óstaðkunnugur Snorri Sturluson kallaði í Árósum, þótt ósinn sé aðeins einn.
Jyllands-Posten, eða Jótlandspósturinn er bleðill sem gefinn er út í Danmörku, ntt í Árósi. Blaðið er eingöngu annálað, eða réttara sagt frægt af endemum, fyrir skopteikningar sem blaðið birti af Múhameð spámanni og sem næstum því voru búnar að koma af stað enn einu heimsstríðinu.
Nú er blaðið aftur á ferðinni með teiknimynd þar sem veirur hafa verið settar í stað hinna fjögurra gula stjarna á þjóðfána Kínverja. Þetta bæði særir og móðgar Kínverja.
Samkvæmt ritstjóra blaðsins átti þessi teikning hvorki að vera fyndin eða ádeila, enda er hún það ekki. Hún sýnir fyrst og fremst lágt greindarstig og dómgreindarleysi á ritstjórnargangi Jyllands-Posten.
Danska ríkissjónvarpið, DR, spurði í gær nokkra kínverska og danska borgara um álit þeirra á teikningu JP. Fyrrverandi prófessor við deildina mína í Árósum, Víkingaaldarsérfræðingurinn Else Roesdahl, var spurð á götu þar í borg og sagði að hún að hún teldi JP ætti að biðjast afsökunar. Ég tek hattinn af fyrir Elsu! Hér (3,45 mínútur eftir byrjun fréttatímans) má heyra skoðun prófessorsins
Ritstjórinn á JP taldi hins vegar enga ástæðu til þess, og sammála voru margir danskir stjórnmálamenn. Enn aðrir Stórdanir líta á þetta sem eitthvað "listaverk", hluta af fjölmiðlafrelsi og jafnvel dæmi um einstakan danskan húmor.
Í þessu tilviki erum við ekki tala um stórkarlalega kínverska diplómata og sendiherra sem hamast í vestrænum fjölmiðlum yfir minnstu gagnrýni á Kína. Við erum að ræða um alvarlegan sjúkdóm. Ef Kínverjar hafa ekki framleitt veiruna líkt og sumir spunameistarar eru farnir að halda fram í lygafréttaham, er ósiðlegt að drita yfir þjóðfána fólks sem enga sök á á voveiflegum sjúkdóm. Slíkt er eiginlega harla frumstætt.