Quantcast
Channel: Fornleifur
Viewing all articles
Browse latest Browse all 396

Drengurinn í fjólubláu skyrtunni, París 1971

$
0
0

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson París 11 ára

Fornleifur gamli, sem er allt að einræður á þessu bloggi, hefur lengi hvatt einn ritstjóra þess til að birta hér gamla mynd af sér, þá er ritsjórinn var bæði ungur og fallegur. Fornleifur telur myndina kominn á aldur og telur hana vel geta talist til hálfgerðra fornleifa, enda verður myndin 50 ára eftir tæp tvö ár. 

Taka verður fram að ritstjórinn er enn ungur í anda, en fallegur er hann nú ekki og heldur því hvergi fram - en kannski myndarlegur? Sem jarteikn fyrir því að ritstjórinn var eitt sinn fallegur og myndarlegri en hann er í dag, birtist hér mynd af honum nýkomnum á 11. aldursár, þar sem hann sat fyrir í París í lok ágústmánaðar 1971 - alveg eins og hann hefði aldrei gert annað.

Það var vitanlega fræg frönsk listakona, sem mér sýnist heita Nicole Ar... sem á frídegi sínum er hún var ekki að selja myndir á fínustu galleríum Parísar, sat á torginu í Montmartre og teiknaði þessa litkrítarmynd af drengnum frá Islande. Hún keðjureykti meðan að hún teiknaði mig. Mér skilst að kona þessi hafi orðið fræg fyrir að hafa teiknað hinn "Grátandi dreng" sem margfrægur er orðinn í eftirmyndagerðum. Ekki teiknaði hún þó tár á hvarma ritstjórans, en lagði natni sína í staðinn við freknurnar. Ég man að sjálf var hún í fjólublárri rúllukragapeysu, og hafði á orði samkvæmt frönskumælandi föður mínum, að ég hefði góðan smekk á lit. Skyrtan fjólubláa var aldrei beint minn smekkur. En hvað gerir maður ekki þegar maður er það sem Bretar kalla "a dedicated follower of fashion."

Sannast sagna var ég ekkert óánægður með myndina, þó ég gerði mér þá þegar grein fyrir því að Nicole A.. væri ekki stór listakona.  Mér fannst hún reyndar ná hárinu vel og gera mig líkan Dýrðlingnum, Roger Moore, sem þekktastur var fyrir að hárið sat ávallt vel þó hann lenti í ryskingum við glæpahyski.  En nú sé ég, að ég var miklu líkari Tony Curtis sem birtist á skjánum með Roger Moore árið 1971 í The Persuaders, og var sá myndaflokkur kallaður Fóstbræður á íslensku, sællar minningar.

Fyrir utan að franska listakonan eilífaði mig með stór saklaus hvolpaaugu, sem ég hafði nú aldrei haft (en slíkt selst betur), þá held ég barasta að myndin sé ekki mjög ósvipuð mér.

Annar listamaður spreytti sig fyrst á drengnum frá Íslandi. Hann var spænskur og var með Baskahúfu. Þar fór því miður ekki Picasso - Foreldrar mínir voru ekki eins ánægðir með þá mynd (sem var kolateikning) þar sem þeim fannst ég verða of dökkleitur á myndinni. Mér fannst ennið á mér vera of lágt. Amma mín í Hollandi fékk þá teikningu, og sem betur fer veit enginn hvar það "listaverk" er nú niður komið.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 396